Um Mín Næring
Mín næring sf. var stofnað í febrúar árið 2024 af Örnu Ösp Gunnarsdóttur og Eddu Andrésdóttur, löggiltum næringarfræðingum með starfsleyfi frá Embætti Landlæknis. Markmið okkar er að styðja einstaklinga og hópa við að ná sínum næringarmarkmiðum með faglegri og persónulegri ráðgjöf. Uppfært - Eins og er þá hefur Arna stigið tímabundið til hliðar á meðan hún sinnir mikilvægasta hlutverkinu í fæðingarorlofi.
Arna Ösp Gunnarsdóttir
Arna hefur lengi haft mikin áhuga á næringu og heilsu almennt, hefur alla tíð verið í íþróttum og er í dag í landsliðinu í klassískum kraftlyftingum. Markmið hennar er að aðstoða einstaklinga við að betrumbæta sína næringu, út frá því hvar fólk er statt hverju sinni, hvort sem það sé að bæta almenna heilsu og/eða bæta afkastagetu í íþróttum.
Edda Andrésdóttir
Áhugi Eddu á næringu og mataræði kviknaði á unglingsárunum og hefur fylgt henni alla tíð síðan. Það voru hins vegar veikindi innan fjölskyldunnar sem urðu vendipunktur - þar fékk hún að sjá af eigin raun hversu öflug næring getur verið fyrir almennt heilbrigði. Þessi reynsla kveikti löngun hennar til að starfa innan fræðanna og aðstoða aðra við að nýta næringu til að bæta lífsgæði sín og heilsu.