Fyrirtæki og hópar
Mín næring sf. tekur að sér bæði fyrirlestra og námskeið fyrir fyrirtæki og hópa, bæði almennt um næringu en einnig sérsniðið að óskum hvers og eins hverju sinni.
Hvernig virkar þjónusta fyrir fyrirtæki og hópa?
Þjónustan virkar þannig að fyrirtæki eða hópar setja sig í samband við okkur gegnum tölvupóst. Við í framhaldi sérsníðum fræðslu að þeirra þörfum hverju sinni.
Sem dæmi getum við skoðað hvort hópurinn hafi ákveðin markmið eða sérstakar áherslur sem við gætum nýtt til þess að móta efni og framsetningu í samræmi við.
Fjölbreytt form af þjónustu og fræðslu er í boði, allt eftir því hvað hentar
- stakir fyrirlestrar, röð fyrirlestra, námskeið, bæklingar, fræðsluefni, fjarfyrirlestrar, fjarnámskeið eða blanda af þessu.
Fræðslan getur farið fram hvenær dags sem er og snýst alltaf um að koma til móts við hópinn eða fyrirtækið á þeirra forsendum.
Markmiðið er að veita hnitmiðaða, gagnlega og áhugaverða fræðslu sem hefur raunveruleg áhrif.