Fara á efnissvæði

Einstaklingsþjónusta

Boðið er upp á staðviðtöl sem fara fram í Þrek Heilsuklíník, Faxafeni 14 eða fjarviðtöl sem fara fram gegnum fjarfundarbúnað - þú ræður!

Svona virkar einstaklingsráðgjöf
Þú bókar tíma á netinu
Svarar nokkrum spurningum (valkvæmt)
Mætir í viðtal - 50 mín
Færð endurgjöf og upplýsingar með tölvupósti

Við veitum þér góðan stuðning og eftirfylgni. Förum við yfir framvinduna, endurskoðum og fínpússum ráðleggingar eftir því. 

Hvernig virkar einstaklingsmiðuð næringarráðgjöf?

Í fyrsta tímanum förum við dæmigert yfir þína heilsusögu, lífsstíl, matarvenjur, hreyfingu og önnur atriði sem hafa áhrif á þínar næringarþarfir. Við ræðum þín markmið og áskoranir og höfum hlutina raunhæfa og mælanlega, svo þú getir náð árangri á þínum forsendum.

Út frá þessum upplýsingum færð þú hagnýtar ráðleggingar sem auðvelt er að innleiða í daglegt líf, byggðar á þínum venjum og lífsstíl. Ef það hentar þér, getum við síðan haldið áfram að byggja ofan á þessa grunnvinnu með eftirfylgni – þú stjórnar ferðinni.

 

Eftirfylgni

Rannsóknir hafa sýnt fram á að til þess að ná varanlegum árangri skiptir góður stuðningur og eftirfylgni miklu máli. Því getur verið afar hjálplegt að  taka nokkra tíma í eftirfylgni eftir fyrsta viðtal til þess að tryggja sem besta fylgni og þannig árangur í átt að þínum markmiðum.