Tannheilsa
bladíbla tennur og heilsa og almenn heilsa
Kolvetni
Gæðin skipta mál
Kolvetni eru mikilvæg orkuefni og ættu að veita 45–60% af heildarorku. Best er að velja trefjarík kolvetni úr heilkornum, ávöxtum, grænmeti og baunum. Slík kolvetni hafa jákvæð áhrif á heilsu, lífslíkur, meltingu og minnka áhættu á sjúkdómum eins og hjartasjúkdómum og sykursýki 2.
Viðbættum sykri ætti að neyta í hófi – hann ætti ekki að fara yfir 10% af heildarorku og ætti helst að forðast hjá börnum undir tveggja ára aldri.